Íslensk matargerð heldur áfram að vekja athygli Michelin-handbókarinnar. Matreiðslumennirnir Gunnar Karl Gíslason og Þráinn Freyr Vigfússon eru meðal þeirra sem Michelin hefur valið til að koma fram undir merkjum Mindful Voices, nýs alþjóðlegs ritstjórnarverkefnis handbókarinnar.