„Þetta var ekki skot eða vanvirðing gagnvart ÍA eða Lárusi. Við spiluðum leikinn nákvæmlega eins og þeir,“ segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, aðspurður út í ummæli hans eftir leik liðsins gegn ÍA um helgina. Eftir fór Sigurður mikinn í viðtali þar sem hann kallaði leikinn viðburð sem ætti ekkert skilt við fótbolta ásamt því að segja að hann missi ást sína á fótbolta við að taka þátt í leikjum sem þessum. Fótbolti.net sló á þráðinn til Sigurðar í dag og spurði hann nánar út í ummælin og hvað hann ætti við.