Albin Kurti starfandi forsætisráðherra Kósovó varð fyrir eggjakasti á fyrsta þingfundinum eftir kosningar sem haldnar voru 7. júní.Á fundinum átti að ganga frá skipan þingsins eftir kosningarnar. Kurti bað um meiri tíma til að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um skipun nýs þingforseta og var sú beiðni samþykkt. Flokkurinn sem vann kosningarnar hafði boðað fundinn þrátt fyrir mótmæli bæði frá stjórnarandstöðunni og sérfræðingum í stjórnskipun, sem töldu framkvæmdina á skjön við stjórnarskrána þar sem fresturinn sem hún hafði til að skipa þingið hafi verið liðinn.Time Kadrijaj, einn þingmaður stjórnarandstöðunnar, henti þá minnst fjórum eggjum í forsætisráðherrann meðan hún jós yfir hann skömmum.