Appelsínugul viðvörun vegna hita hefur verið gefin út fyrir stórt svæði á sunnanverðu Englandi. Viðvörunin gildir mestallan fimmtudaginn og gæti hitinn náð allt að 38 stigum. Breska veðurstofan segir í viðvörun sinni að hitinn gæti haft áhrif á samgöngur, innviði og heilsu fólks.Viðvörunin nær til nokkuð stórs svæðis í Suður- og Austur-Englandi. Meðal borga innan þess eru Lundúnir, Oxford, Birmingham, Nottingham, Sheffield, Leicester og Cambridge.Veðurstofan segir að fólk sem er viðkvæmt fyrir hita gæti fundið fyrir honum í formi hitakófs og annarra tengdra heilsukvilla. Þá gæti hitinn leitt til rafmagnstruflana og truflana á þjónustu við heimili og fyrirtæki.Heilbrigðisyfirvöld hafa einnig gefið út viðvörun vegna hitans til heilbrigðisstarfsfólks. Hitinn sé líklegur til að leiða af sér mi