Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með talsverðan viðbúnað við Austurbæjarskóla á öðrum tímanum í dag vegna andláts. Ekkert bendir til þess að það hafi borið að með saknæmum hætti, að sögn Unnars Más Ástþórssonar, aðalvarðstjóra.Hann segir að við fyrstu sýn hafi ekki orðið nein vitni að andlátinu. Aðstoð standi alltaf fólki til boða sem kemur að aðstæðum sem þessum.„Það er væntanlega einhver sem kemur og finnur viðkomandi. Það eru engar upplýsingar um að neinn hafi orðið vitni að þessu.“Hann segir næstu skref felast í því að bera kennsl á viðkomandi og hafa samband við ættingja. Svo tekur rannsókn við.