Hafa borið kennsl á manninn sem lést í bílslysi á Þrengslavegi

Lögreglan á Suðurlandi hefur borið kennsl á mann sem fórst í bílslysi á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells 27. júlí. Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi.Aðstandendur báru kennsl á manninn en hann var erlendur ríkisborgari. Landsréttur heimilaði réttarkrufningu á líki mannsins 30. júlí.Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafði vegabréf hins látna verið tilkynnt sem stolið en lögregla fékk vegabréfið afhent af þriðja aðila sem sagði það hafa verið í eigu hans. Það eitt þótti ekki fullnægjandi til að bera kennsl á manninn.Tveir voru í bílnum þegar hann hafnaði utan vegar á Þrengslavegi. Þegar lögregla kom á vettvang voru endurlífgunartilraunir hafnar á farþega bílsins en þær báru ekki árangur. Ökumaðurinn var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús e
Hafa borið kennsl á manninn sem lést í bílslysi á Þrengslavegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd