Sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn í raðir Íslandsmeistara Víkings og skrifar undir samning út tímabilið. Vísir greindi fyrst frá þessu og félagið staðfesti svo skiptin í kjölfarið. Fram kemur í tilkynningu Víkings að hann ætli að hjálpa félaginu í lokabaráttunni um íslandsmeistaratitilinn og áframhaldandi sókn í Evrópu. „Svenni spilaði sinn síðasta leik í lok apríl þannig að leikformið er kannski ekki uppá 10 en hann hefur æft vel og hefur núna 1-2 vikur til þess að komast í alvöru stand. Hann er hungraður og ætlar sér aftur erlendis að spila og gæti þetta verið frábær gluggi fyrir hann að sýna sig og jafnframt hjálpað okkur á öllum vígstöðum," segir Kári Árnason yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Þess má geta að afi Sveins, Arnór Guðjohnsen lék fyrir Víking fyrir tæpum 50