Svo kann að virðast sem ríkissjóður hafi undir léninu rikissjodur.is og ríkissjóður.is óvænt blandað sér í kosningabaráttuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna með útgáfu upplýsingavefs um kostnaðinn, sem hlotist hafi af því að hafa krónuna sem gjaldmiðil á þessari öld. Við nánari skoðun kemur þó í ljós að vefurinn er hinu opinbera alls óviðkomandi.