Nýjar umbúðir um ungnautahakk í Krónunni voru gallaðar og láku. Hakkið hefur aftur verið sett í eldri umbúðir. Framkvæmdastjóri segir miður að um slíkan galla hafi verið að ræða. Viðskiptavinir njóti enn lægra vöruverðs á meðan unnið er að því að laga umbúðir.