Jim Ratcliffe og Guðmundur í Brim fjárfesta í Fjallalambi á Kópaskeri

Fjárfestarnir Jim Ratcliffe og Guðmundur Kristjánsson, sem kenndur er við Brim, verða nýir hluthafar í fyrirtækinu Fjallalambi á Kópaskeri. Þetta segir Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Six Rivers sem er í eigu Ratcliffes.Framtíð Fjallalambs hefur verið í óvissu vegna fjárhagsörðugleika og var sagt frá því í júlí að Byggðastofnun hefði neitað að afskrifa lán sem ríkisstofnunin veitti fyrirtækinu.Gísli Ásgeirsson segir að fyrirtæki á vegum Ratcliffes muni eiga um 20 prósenta hlut í Fjallalambi. Hann segir ekki liggja fyrir hvaða fyrirtæki Ratcliffes muni eiga hlutinn í Fjallalambi.Fréttastofa sendi Guðmundi Kristjánssyni sms-skilaboð um viðskiptin sem hann hafði ekki svarað þegar fréttin var birt. Framkvæmdastjóri Fjallalambs, Björn Víkingur Björnsson, vildi ekki tjá sig um i
Jim Ratcliffe og Guðmundur í Brim fjárfesta í Fjallalambi á Kópaskeri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd