Dregið var í fyrstu umferð forkeppni Evrópubikars kvenna í fótbolta í dag. FH og Breiðablik voru í pottinum.FH mætir Appollon Ladies sem varð kýpverskur meistari á síðasta tímabili. Breiðablik leikur gegn FK Csíkszereda frá Rúmeníu en liðið varð í öðru sæti úrvalsdeildarinnar þar í landi í vor.Úr leik Breiðabliks og FH á KópavogsvelliMummi LúHafnfirðingar byrja á útivelli en Blikar verða á heimavelli í fyrri leiknum. Leikið verður 26. ágúst og 2. september.Tvær umferðir eru í forkeppninni áður en Evrópubikarinn sjálfur hefst. Sænska liðið Häcken vann keppnina í ár en það var í fyrsta skipti sem hún var haldin.