Hólmbert Aron Friðjónsson, atvinnumaður í fótbolta, vann hetjudáð um helgina þegar hann ásamt vini sínum bjargaði manni úr brennandi bíl.Hólmbert spilar fyrir liðið Gwangju (Gvantsjú) FC í Suður-Kóreu og var liðið á heimleið eftir útileik þegar komið var auga á bílinn. Bílnum hafði verið ekið aftan á vörubíl og lenti utan vegar þar sem hann stóð í ljósum logum.„Við sáum út undan okkur að þarna hafði orðið slys sem samt enginn hafði komið enn að, en við vorum að pæla í því hvort einhver væri í bílnum sem kviknað hafði í.“ BÍLLINN ALELDA Á NOKKRUM MÍNÚTUM Bílstjóri liðsrútunnar var smeykur við aðstæður á vettvangi og óttuðust liðsmenn að bíllinn myndi springa.„Það voru allir eiginlega smá hræddir við að bíllinn myndi bara springa eins og í bíómyndunum. Þannig það var eiginlega verið að ba