Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur kallað til þrjá erlenda sérfræðinga til að leggja mat á aðstæður þar sem líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar liggja í Grindavík. Matið verður liður í áhættumati vegna mögulegrar aðgerðar til að endurheimta líkamsleifarnar.