Það vakti athygli í gær að maður á þrítugsaldri hefði verið á meðal boltasækjara þegar Fram og KR áttust við í Bestu deildinni. Framarinn Hilmar Þór Sólbergsson tók þátt í Fantasy leiknum vinsæla á síðasta tímabili og var refsingin fyrir að enda í neðsta sæti að vera boltasækjari á leik í Bestu deildinni. Hilmar er uppalinn hjá Fram, er fæddur 2001 og hefur leikið með Hvíta riddaranum undanfarin ár.