Skarkala heimsins linnir ekki þótt heimsmeistaramótið í knattspyrnu renni sitt skeið og hetjur vallarins fái verðskuldaða hvíld. Þeirri hugmynd skaut upp í huga minn að kapparnir sem þarna öttu kappi séu einskonar arftakar skylmingaþræla Rómarveldis til forna. Hetjurnar heyja sínar orrustur frammi fyrir múgi og margmenni sem kemur saman á ógnarstórum leikvöngum og hvetur þá til dáða. Með tilkomu sjónvarps...