Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu. Í ákærunni er hann sagður hafa notfært sér yfirburði sína sökum þroskamunar og traust konunnar til hans sem bílstjóra. Hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar.Maðurinn er sakaður um að hafa brotið gegn konunni í tvígang á heimili hennar í mars 2023.Honum er gefið að sök að hafa „án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, sett getnaðarlim sinn í eða við leggöng og endaþarm“ konunnar, káfað á brjóstum og kynfærum hennar, kysst hana og að minnsta kosti í annað skiptið lagst nakinn að neðan ofan á hana þar sem hún lá nakin í rúmi.Héraðssaksóknari fer fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið er fram á 2,5 milljónir í miskabætur.