Neyðarástandi lýst yfir í Kólumbíu eftir jarðskjálfta

Sjálfboðaliðar og björgunarfólk í Kólumbíu vinnur nú hörðum höndum, í bókstaflegri merkingu, að því að leita að fólki í rústum húsa eftir jarðskjálftann sem reið yfir vesturhluta landsins í gær. Fólkið notast aðallega við fötur og eigin hendur til leitar.Staðfest er að minnst 132 fórust í skjálftanum og yfir 570 slösuðust. Flestir þeirra búa í borginni Pereira sem er í stærsta kaffiræktunarhéraði landsins. Borgin er aðeins 55 kílómetra frá miðju skjálftans. Rafmagnslaust varð í borginni við skjálftann og því fóru björgunaraðgerðir í gærkvöldi fram í svartamyrkri. Minnst 65 byggingar hrundu í borginni og er talið að fólk sé fast í 15 þeirra.Ástandið er einnig slæmt í fleiri borgum. Í Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins, var komið á útgöngubanni yfir nóttina. Þar er einnig unnið að því
Neyðarástandi lýst yfir í Kólumbíu eftir jarðskjálfta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd