Varðhald þriðja mannsins í Kársnesmálinu kært til Landsréttar

Elimar Hauksson, verjandi eins mannanna sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns á Kársnesi í Kópavogi um helgina, hefur kært úrskurðinn til Landsréttar. Vísir.is greindi fyrst frá.Lögregla tilkynnti fyrr í dag að erlendur ríkisborgari hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsóknina og sitja því alls þrír í varðhaldi í tengslum við málið.Elimar segir að kröfunni um gæsluvarðhald hafi verið mótmælt í gær og hún svo kærð í dag. Hann sagðist þó ekki geta tjáð sig um málið að öðru leyti.Elimar er verjandi þriðja mannsins sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald í gær. Maðurinn er erlendur ríkisborgari. Hann var skipaður í gæsluvarðhald til 14. ágúst.Líkt og fréttastofa sagði frá í gær höfðu tveir menn verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
Varðhald þriðja mannsins í Kársnesmálinu kært til Landsréttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd