Landskjörstjórn setur ofan í við Morgunblaðið

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið hafa birt fullyrðingu í blaði gærdagsins sem sé „alfarið röng“. Fréttin sem um ræðir var birt á forsíðu blaðsins í gær og á mbl.is undir fyrirsögninni „Orðalag um óvissa kjósendur horfið af upplýsingavef landskjörstjórnar“.Þar var því haldið fram að orðalagi á upplýsingavef landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst hefði verið breytt án þess að breytingarinnar væri getið.„Af þessu tilefni vill landskjörstjórn taka fram að þessi fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng. Engar breytingar hafa verið gerðar á þeim texta sem birtur er á upplýsingavef landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna,“ segir í yfirlýsingu sem er birt á vef landskjörstjórnar.Komi til þess að kynningartexta verði breytt mun þess verða getið með skýrum hætti, að sögn land
Landskjörstjórn setur ofan í við Morgunblaðið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd