Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Fram, var sérstaklega spurður út í þrjá leikmenn í viðtali eftir tapið gegn KR í gær. Miðjumaðurinn Freyr Sigurðsson hefur verið mjög öflugur að undanförnu og orðaður við atvinnumennsku. Atli Þór Jónasson hefur glímt við meiðsli síðasta mánuðinn og Simon Tibbling fékk höfuðhögg í síðasta leik á undan og var ekki með í gær.