Ásdís Karen Halldórsdóttir er á heimleið og er nálægt því að ganga í raðir FH frá Braga í Portúgal, samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Þessi 26 ára gamli sóknarmaður hefur verið á mála hjá portúgalska liðinu í rúmt ár. Hjá FH mun Ásdís fylla í skarð Ídu Marínar Hermannsdóttur sem er á leið frá Fimleikafélaginu til Hammarby í Svíþjóð. Ída er markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar með ellefu mörk í þrettán leikjum.