Sólmyrkvi verður miðvikudaginn 12. ágúst í um tvær klukkustundir, frá um 16:45 og til um 18:50. Nákvæm tímasetning veltur á því hvar fólk er statt í landinu. Hér er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi sólmyrkvann. ALMYRKVI, DEILDARMYRKVI, SÓLMYRKVI Sólmyrkvi er það fyrirbæri þegar tunglið fer fyrir sólina og hylur hana, ýmist alla eða að hluta. Deildarmyrkvi er sú tegund sólmyrkva þar sem tunglið hylur sólina aðeins að hluta. Almyrkvi er þegar tunglið hylur sólina alveg og þá myrkvar snögglega.Sólmyrkvinn 12. ágúst 2026 verður lengst af deildarmyrkvi, bæði fyrir og eftir almyrkvann er tunglið ferðast fram hjá sólinni.Almyrkvinn nær aðeins til vestanverðs Íslands. Allir Íslendingar austan almyrkvaslóðarinnar sjá umtalsverðan deildarmyrkva, frá 99,99% niður í 95%. TÍMASETNING