Heimila réttarkrufningu á „óþekktum manni“

Landsréttur hefur heimilað kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um réttarkrufningu á líki óþekkts manns. Maðurinn lést í bílsysi í júlí.Í úrskurðinum segir að tveir hafi verið í bílnum. Bíllinn hafnaði utan vegar og þegar lögregla kom á vettvang voru endurlífgunartilraunir hafnar á farþega bílsins en þær báru ekki árangur.Ökumaður bílsins var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsi. Í úrskurðinum er hann sagður liggja á gjörgæslu. VEGABRÉF TILKYNNT SEM STOLIÐ Hinn látni er talinn vera erlendur ríkisborgari en ekki reyndist unnt að bera kennsl á hann og fór Lögreglustjórinn á Suðurlandi því fram á réttarkrufningu á „óþekktum manni“, eins og það er orðað í niðurstöðunni.Héraðsdómur Suðurlands hafnaði upphaflega beiðni lögreglustjórans á Suðurlandi en ákvörðunin var kærð til Landsréttar sem f
Heimila réttarkrufningu á „óþekktum manni“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd