Yfirvöld boða bólusetningu fugla gegn H5-fuglaflensu

Áströlsk yfirvöld tilkynntu í morgun að þau hygðust bólusetja fuglategundir sem taldar eru sérstaklega viðkvæmar fyrir hinum mjög svo smitandi H5-fuglaflensustofni. Árum saman var Ástralía eina meginlandið sem var laust við afbrigðið sem valdið hefur alvarlegum veikindum og dauða villtra og alifugla um heim allan.Veiran greindist í fyrsta skipti í farfugli í júní og í liðinni viku tilkynntu yfirvöld um fyrsta fjöldadauðann meðal villtra fugla. Hún virðist helst herja á sjó- og vatnafugla ásamt ránfuglum.Næstum helmingur villtra fugla í Ástralíu og 83 af hundraði spendýra eru af tegundum sem hvergi annars staðar eru til. Embættismenn segja bólusetningaráætlun þegar liggja fyrir. Umhverfisráðherrann Murray Watts segir að til að byrja með verði einblínt á bólusetningu alifugla enda þrautin þy
Yfirvöld boða bólusetningu fugla gegn H5-fuglaflensu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd