Einn handtekinn grunaður um líkamsárás

Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld eða í nótt. Ekki kemur fram í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hversu alvarleg árásin var. Lögreglubíll í Aðalstræti. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonLögregla hefur til rannsóknar eignaspjöll sem framin voru á sömu slóðum og vísuðu óvelkomnum gesti brott af veitingastað án vandkvæða. Að minnsta kosti tvisvar bárust lögreglu tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir. Í öðru tilfellinu var engan að finna en í hinu reyndust hinir dularfullu vera starfsmenn fyrirtækis að ljúka vinnudeginum.
Einn handtekinn grunaður um líkamsárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd