Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þegar hlutirnir gerast þegar um heitt vatn er að ræða því þar var að koma risa lottóvinningur en hann kom í Áshildarmýri hjá eigendum hitaveitunnar eftir að jarðfræðingarnir Sigurður Kristinsson og Auður Óladóttir hjá Ísor höfðu mætt á staðinn og merkt hvar ætti að bora og allt gekk eftir, á milli 40 og 50 sekúndulítrar fundust af 80 gráðu heitu vatni. Það var Johnny, sem er með einkanúmerið á bílnum sínum, Borari, sem fann vatnið á bor frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða.„Þetta er svona með betri borholum á svæðinu og ætli þetta verði ekki hola ársins. Við fórum niður 792 metra en vatnið er aðeins ofar. Við erum komnir í gegnum vatnsstreymið og þetta gefur í dælingu óhemju en það næst ekkert upp úr henni það magn sem hægt væri að ná í, menn hafa ekki dælur til