Donald Trump er talinn hafa verið fluttur á laun úr stærri forsetaþotunni yfir í þá minni þegar hann yfirgaf Ankara í Tyrklandi eftir ráðstefnu ríkja Atlantshafsbandalagsins. Ástæðan hafi verið líflátshótun úr ranni Írana.Washington Post rakti atburðarásina í gær með tilvitnunum í ónafngreindan, bandarískan embættismann. Hann segir Trump hafa stigið um borð í gömlu forsetaþotuna af gerðinni Boeing 747, nefnda Air Force One, á Ankaraflugvelli en fært sig strax yfir í veitingavagn.Þannig hafi hann verið fluttur um borð í Air Force Two, sem er minni Boeing-þota af gerðinni C-32A. Það er hernaðarútgáfa af 747-200. Á upptökum má sjá vagninn síga niður úr þotunni örfáum mínútum eftir að Trump fór um borð og aka í átt að þeirri minni.Öllum, þar á meðal fjölmiðlum, var talin trú um að Trump væri e