Viðbúnaður hefur verið aukinn víða á Vesturlandi og Vestfjörðum vegna fjölda ferðamanna sem búist er við þegar almyrkvinn skellur á á miðvikudag. Viðbragðsaðilar undirbúa sig fyrir aukið álag og ferðaþjónustan gerir sömuleiðis ráð fyrir mikilli aðsókn. VIÐBRAGÐSAÐILAR UNDIRBÚA SIG Arna Margrét Arnardóttir, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar, segir björgunarsveitir hafa verið að undirbúa sig um nokkurt skeið og óskað hafi verið eftir liðsauka annars staðar frá.Fleiri viðbragðsaðilar koma að undirbúningnum, meðal annars lögregla, sjúkraflutningar og slökkvilið. Fulltrúar Rauða krossins eru einnig komnir vestur.Fundað var í kvöld þar sem farið var yfir mannafla, hvað þurfi að vera til taks og hvaða aðstæður þurfi að vera búið undir. ERFITT AÐ ÁÆTLA FJÖLDANN Petrína Sigrún Helgadóttir,