Hæstiréttur úrskurðaði að Yabloko megi ekki bjóða fram til þings í september

Hæstiréttur Rússlands úrskurðaði í gær að Yabloko-flokkurinn mætti ekki bjóða fram í þingkosningum í september. Flokkurinn er sá eini sem talað hefur gegn innrásarstríðinu í Úkraínu.Rétturinn féllst þannig á kröfur þjóðernissinnaða flokksins Rodina, sem staðhæfði að frambjóðendur Yabloko væru föðurlandssvikarar á mála hjá Vesturlöndum sem vilji knésetja Rússland. Flokkurinn hefur notið stuðnings allmargra stjórnarandstæðinga í útlegð, þeirra á meðal Yuliu Navalnyu, ekkju stjórnarandstæðingsins Alexei Navalny.Þau eru bæði á lista stjórnvalda yfir öfgafólk. Flestir andstæðinga Vladimírs Pútíns forseta eru ýmist látnir, í útlegð eða í fangelsi og Yabloko er eini frjálslyndi flokkurinn sem enn starfar í Rússlandi. Um það bil hundrað stuðningsmenn flokksins komu saman við hús hæstaréttar og kyr
Hæstiréttur úrskurðaði að Yabloko megi ekki bjóða fram til þings í september

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd