Akureyringar berjast enn við bjarnarkló

Ekki hefur tekist að útrýma eitraðri plöntu á Akureyri og víðar, en hún getur valdið alvarlegum meiðslum og jafnvel blindu. Plantan leynist meðal annars í einkagörðum og þá er æskilegt að fólk losi sig við hana. Mikilvægt er að gera það rétt, vera vel búinn og fara að öllu með gát. HÆTTULEG SKRAUTPLANTA Við fyrstu sýn virðast þær kannski svipaðar, ætihvönnin sem flestir þekkja og risahvönnin. Sérstaklega þegar þær eru ekki hlið við hlið. Risahvönn ber líka heitið bjarnarkló og plönturnar tvær eru af sömu ætt. En það skiptir máli að þekkja þær í sundur, því bjarnarklóin getur reynst stórvarasöm.Bjarnarkló var upphaflega flutt til Íslands sem garðplanta. Það hefur verið bannað að rækta og flytja hana inn frá 2011, en skaðinn var skeður. Plöntunni tókst að hreiðra um sig hér á landi og hef
Akureyringar berjast enn við bjarnarkló

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd