Minnst fimm týndu lífi í loftárás á Zaporizhzhia — eldflaugaárás á Kyiv

Fimm týndu lífi í loftárás Rússlandshers á úkraínsku borgina Zaporizhzhia í kvöld og 20 til viðbótar særðust. Ivan Fedorov, yfirmaður heraflans í héraðinu, greindi frá þessu á samskiptamiðlinum Telegram.Hann bætti við að líklega ættu fleiri eftir að finnast látnir. Árásir voru gerðar á iðnaðarsvæði og íbúðahverfi að sögn Fedorovs. Háværar sprengingar hafa einnig kveðið við í höfuðborginni Kyiv og borgarstjórinn Vitali Klitschko segir eldflaugaárás standa yfir.Volodymyr Zelensky forseti sagði fyrr í dag að Rússar ættu von á fleiri hermönnum frá Norður-Kóreu og hefðu einnig fengið eldflaugar þaðan nýlega.Rússar hafa hert á eldflaugaárásum síðustu vikur á sama tíma og hörgull er orðinn á bandarískum loftvarnarflaugum í Úkraínu vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Úkraínumenn hafa einnig gert
Minnst fimm týndu lífi í loftárás á Zaporizhzhia — eldflaugaárás á Kyiv

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd