Björgunarsveitir voru kallaðar út vegna tveggja slasaðra ferðamanna í dag, annars vegar við Hafragilsfoss skammt frá Dettifossi og hins vegar í Hrútagili í Skaftafelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Þór Víglundssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.Við Hafragilsfoss hafði ferðamaður hrasað illa í gili. Slysstaður var undir háum klettum í nokkuð brattri brekku og þar fyrir ofan var önnur brekka upp á brún, þangað sem ökutæki komust.Björgunarsveitir frá Reykjadal, Laugum, Húsavík, Kópaskeri, Mývatni og Akureyri tóku þátt í aðgerðinni. Ferðamaðurinn var settur í börur og hífður upp klettabeltið. Þar tók sexhjól við og flutti hann upp á brún, þar sem sjúkrabíll flutti hann á sjúkrahúsið á Akureyri.Þyrla Landhelgisgæslunnar var á sama tíma kölluð til vegna ferðamanns í Hrútagili í Ska