Fundur Baudenbachers haldinn í Sjálfstæðissalnum í dag

Fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um Ísland og Evrópusambandið var haldinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll síðdegis í dag.Fyrst stóð til að halda fundinn í hátíðarsal Háskóla Íslands. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor skólans, sagði HÍ hafa þótt tilefni til að færa viðburðinn úr salnum. Hún vísaði til þess að salurinn væri ekki ætlaður viðburðum sem væru pólitískir í eðli sínu.Lögmannsstofa Baudenbacher greindi sjálf frá því að Baudenbacher hefði þegið boð að koma fram á viðburði frá samtökunum Áfram Ísland. Skipuleggjendur fundarins segja hann hins vegar ekki vera á vegum samtakanna heldur Rannsóknaseturs um stjórnmál og efnahagsmál við Félagsvísindastofnun HÍ.
Fundur Baudenbachers haldinn í Sjálfstæðissalnum í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd