Yfir 70% Englands yfirlýst þurrkasvæði

Yfir 70% af Englandi eru nú formlega þurrkasvæði samkvæmt yfirlýsingu umhverfisráðuneytis Bretlands. Þar búa um 45 milljónir manna. Alls staðar á landinu reynir á vatnsuppsprettur og það á ekki eftir að lagast fyrr en það fer að rigna verulega.Óvenju þurrt hefur verið í Bretlandi í sumar eins og víða annars staðar. Júlímánuður hefur aldrei verið þurrari í Englandi og Wales samkvæmt bresku veðurstofunni. Í Englandi var úrkoman aðeins 10% af meðalúrkomu.Fjórar hitabylgjur hafa riðið yfir Bretlandseyjar á þessu sumri með þeim afleiðingum að fjöldi hitameta hefur fallið. Þeirri fimmtu er spáð síðar í vikunni. Skortur á rigningu, sem Bretland hefur ekki verið þekkt fyrir í gegnum árin, hefur valdið því að tún bænda sem yfirleitt eru iðagræn á þessum árstíma eru skraufþurr og gul.Um helmingur En
Yfir 70% Englands yfirlýst þurrkasvæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd