Framtíðarpoppstjarnan Guðjón Þorgils setur fótinn niður

Guðjóni bauðst að semja lag Hinsegin daga í ár. Axel Ingi Árnason og Inga Auðbjörg Straumland sömdu lagið með honum. Guðjón bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna í voru og hefur undanfarna mánuði vakið athygli fyrir sönghæfileika sína.Í laginu Framávið hvetur flytjandinn áheyrendur til að snúa af rangri leið, hvort sem það er í ótta og sjálfsefa eða á braut fordóma og haturs.Hljómsveit sem sett var saman í tilefni Hinsegin daga flutti lagið með Guðjóni ásamt félögum úr kórnum Viðlagi.Þú getur séð flutninginn í spilaranum hér fyrir ofan eða horft á allan þáttinn í spilara RÚV.
Framtíðarpoppstjarnan Guðjón Þorgils setur fótinn niður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd