„Þessi verk eru rétt og sönn því þau spretta algjörlega upp úr kjarna mínum og frá heila sem stundum fer í gegnum erfið veikindatímabil,“ segir myndlistarkonan Ragnhildur Jóhannsdóttir sem fékk rapplag á heilann meðan hún lá á spítala og í kjölfarið kviknaði hugmynd að listasýningu sem hún opnar næsta föstudag.