Tveir karlmenn, annar íslenskur og hinn erlendur, eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti karlmanns í Kópavogi í gær. Prestur í bænum segir mörgum líða illa vegna þessa og hvetur fólk til að leita sér hjálpar.Karlmaðurinn sem lést var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri og bjó í Vallargerði á Kársnesi. Annar mannanna var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, til 17. ágúst, hinn til 21. ágúst.Vísir greinir frá því að annar mannanna sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald, sá íslenski, hafi kært úrskurðinn og segist eingöngu hafa verið bílstjóri.Nágrannar segjast hafa séð tvo dökkklædda menn stíga út úr bíl í götunni og fara að húsinu.Fleiri voru handteknir vegna málsins, meðal annars í lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík, en ekki liggur fyrir hvort farið hafi verið fram á gæsluv