Forseti Alþýðusambands Íslands segir verkalýðshreyfinguna hafa átt í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld í allt sumar til að reyna að koma í veg fyrir að segja þurfi kjarasamningum upp í haust. Meira þurfi til þó til ef það á að ganga eftir.„Það hefur fram að þessu ekkert komið, þannig að það þarf meira til en ekkert. Það liggur alveg fyrir,“ segir Finnbjörn Hermannsson.Formenn sex verkalýðsfélaga sögðu í dag að ef stjórnvöld og atvinnurekendur réðust ekki til aðgerða gegn erfiðu efnahagsumhverfi yrði núgildandi kjarasamningum sagt upp. Hægt er að segja samningunum upp ef verðbólga mælist yfir 4,7% í lok mánaðar, sem allar líkur eru á að gerist.„Við höfum verið í viðræðum. Vonandi höldum við þeim áfram og reynum að komast að einhverju samkomulagi þannig að við þurfum ekki að segja u