Einhver breyting virðist hafa átt sér stað hér á landi, hvað varðar manndrápsmál, um árið 2020. Þá fór slíkum málum að fjölga töluvert en erfitt er að greina einhverjar ástæður fyrir því. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir eðli manndrápa hér á landi enn á þann veg að gerandi og fórnarlamb tengist með einhverjum hætti.