Ítalska lögreglan hefur handtekið mann grunaðan um að hafa fyrirskipað sprengjuárás í fyrra gegn Sigfrido Ranucci, einum þekktasta rannsóknarblaðamanni Ítalíu.Sá sem var handtekinn heitir Valter Lavitola, fyrrverandi ritstjóri, vinur Ranucci og með tengsl við Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. Lavitola er talinn hafa skipulagt árásina og fengið annan mann til þess að finna fjóra menn í verkið. Fjórmenningarnir voru handteknir í júní fyrir að hafa komið sprengjunni fyrir við heimili blaðamannsins í október í fyrra.Sprengjan var svo öflug að hún hefði getað banað fólki sem átti leið hjá. Engan sakaði en bifreiðar Ranuccis og dóttur hans skemmdust.AFP segir lögreglu ekki hafa gefið upp hvert hafi verið tilefni árásarinnar.Ranucci, sem stýrir vikulegum vinsælum fréttaþætti