Viðbúnaður við Dalsbú í Mosfellsbæ hefur verið minnkaður. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir síðustu daga hafa verið rólega, lítið af tilkynningum hafi borist og engir minkar hafi skilað sér í gildrurnar síðustu daga.Allra leiða hefur verið leitað til þess að handsama þá þúsundir minka sem sluppu úr loðdýrabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal 29. júlí. Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri segir aðgerðirnar hafa gengið vonum framar.„Við ákváðum bara eftir nokkra rólega daga að draga úr viðbragði enda hefur þetta gengið vonum framar, það er lítið af tilkynningum að berast og engir að koma í gildrurnar hér í kring þannig að viðbragðið er með lægra móti núna.“ SÓLAHRINGSVAKTIR AFNUMDAR Staðnar hafa verið sólahringsvaktir á Dalsbúinu frá innbrotinu. Nú þegar viðbragð hefur verið lækkað hafa vaktirnar verið afn