Lögreglan á Suðurlandi leitar breskra hjóna sem grunuð eru um að hafa skilið barn eftir í bíl meðan þau fóru í göngu við Eldgjá í Vestur-Skaftafellssýslu gær.Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri segir að lögreglu hafi borist tilkynning um málið í gær og að hún vinni í því að hafa uppi á fólkinu.Kona sagði frá því á Facebook í gær að hjón frá Lundúnum í Bretlandi hefðu komið í Eldgjá með fimm ára dreng með sér. Þau hafi skilið barnið eitt eftir í bílnum meðan þau gengu að Ófærufossi. Konan segir drenginn hafa fundist grátandi á bílaplaninu við ána og hún hafi tekið hann inn og róað hann.Foreldrarnir hafi á endanum fundist og faðirinn hafi sagt við konuna að þau hjónin geri þetta oft án vandræða. Síðan hafi þau brunað í burtu með drenginn.Íris Edda segir lögreglu líta málið alvarlegum augum