Helga Lára Haarde verður aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Hún hefur störf á næstu vikum.Helga hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var kosningastjóri fyrir flokkinn í borgarstjórnarkosningum í vor.Hún hefur í tæplega tíu ár starfað hjá ráðgjafafyrirtækinu Attentus sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur. Þar áður vann Helga hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana.