William „Billy“ Long hefur formlega tekið til starfa sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Hann afhenti Höllu Tómasdóttur forseta Íslands trúnaðarbréf sinn á Bessastöðum í dag, að því er fram kemur í tilkynningu bandaríska sendiráðsins á Facebook.„Ísland og Bandaríkin eiga sér langa sögu samstarfs, allt frá öryggis- og varnarmálum og viðskiptum til lista, bókmennta og landkönnunar,“ er haft eftir Long í færslunni.„Ég hlakka til að vinna með íslensku þjóðinni að því að dýpka samstarf okkar og styrkja böndin milli þjóðanna tveggja.“Long hefur vakið athygli hér á landi og þótt umdeildur, ekki síst vegna ummæla sem hann lét falla við bandaríska þingmenn í byrjun árs þar sem hann grínaðist með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.Þau féllu í grýttan jarðveg hér á landi og fór svo að Long bað