Óvænt lækkun verðbólgu í Danmörku

Hækkandi olíuverð vegna stríðsins í Miðausturlöndum hefur víðast hvar leitt til aukinnar verðbólgu. Það þekkjum við Íslendingar mætavel.En þannig er þetta ekki í Danmörku samkvæmt nýrri mælingu hagstofunnar þar, sem var birt í morgun og gildir fyrir júlímánuð. Í júní var ársverðbólgan 1,9% en mánuði síðar hafði hún minnkað í 1,7%.Það sem vegur þar þungt er lækkun matarverðs, sem hefur verið býsna skörp í sumar. Árshækkun matarverðs var 2,7% í apríl, en í júlí mældist lækkun upp á 1,6%. ÞOLA SVEIFLUR Á OLÍUVERÐI Tore Stramer hagfræðingur Dansk Erhverv, sem eru systursamtök Samtaka atvinnulífsins, segir þessa mælingu koma á óvart en hún sýni að verðþrýstingur í Danmörku er ekki stjórnlaus.„Þetta er fjöður í hatt dansks efnahagslífs, sérstaklega þar sem aukin áhersla á grænar lausnir þýðir
Óvænt lækkun verðbólgu í Danmörku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd