Ný smátæki með staðsetningarbúnaði hafa gefið fuglafræðingum nýjar upplýsingar um ferðir og hegðun farfugla sem verpa á Íslandi. Stórt hafsvæði á miðju Atlantshafi hefur verið friðað. Komið hefur í ljós að krían staldrar þar við í stórum hópum á ferð sinni til suðurheimskautsins.Ævar Petersen fuglafræðingur hefur rannsakað farfugla áratugum saman, meðal annars í Flatey á Breiðafirði. Hann segir nýja búnaðinn hafa gjörbreytt öllum rannsóknum á fuglum síðustu árin.Nýr tækjabúnaður hefur gjörbreytt rannsóknum á ferðalögum farfugla. Meðal annars hefur komið í ljós að rita fer í fjögurra daga ferð frá Flatey til Grænlands til að afla fæðu fyrir unga sína.„Við höfum náð upplýsingum, meðal annars um kríuna sem að fer til Suðurheimskautsins og við höfum getað fylgst með ferðum þeirra alveg nákvæml