Á Samsungvellinum eru farnar af stað framkvæmdir því skipta á um gervigras á keppnisvellinum í Garðabæ. Áætlað er að verkinu verði lokið fyrir lok mánaðar en bæði karla- og kvennaliðið eiga einn heimaleik fyrir þann tíma. Stjarnan stefnir á að spila þá leiki í Miðgarði, fjölnota íþróttahúsinu í Garðabæ. Þar æfa liðin á veturna og munu æfa næstu vikurnar á meðan framkvæmdum stendur.