Hefðbundnar sveiflur af völdum El Niño-veðurfyrirbærisins eru meiri en áður, segir fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, og valda öfgum í veðurfari víða um heim. Evrópska loftslagsstofnunin, Kópernikus, gaf í morgun út mánaðarlegt yfirlit yfir veðurfar.Þar kemur fram að júní og júlí voru þeir heitustu í vesturhluta Evrópu frá því mælingar hófust.Margt hefur áhrif á öfgar í veðri, þar á meðal loftslagsbreytingar. El Niño hefur mikil áhrif, einkum í Mið-Ameríku og norðurhluta Suður-Ameríku. Hitamet féllu hjá 110 milljónum manna allt frá Mexíkó til norðurhluta Brasilíu. ÝMIS ÞEKKT VEÐURFRÁVIK FYLGJA EL NIÑO Veðurfyrirbærið El Niño eða svokallaður El Niño-atburður er nú í gangi í hitabelti Kyrrahafsins. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, seg