Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 varð í Kólumbíu í dag. Upptök hans voru í vesturhluta landsins. Fyrstu fregnir herma að byggingar í höfuðborginni Bógóta og í Quito höfuðborg Ekvador hefðu hrist og skemmst. Skjálftinn fannst einnig í Panama.Minnst 47 eru látnir eftir skjálftann, þar af 18 í borginni Pereira í Kólumbíu. Þá skemmdust minnst 20 byggingar í borginni Cali og hefur fólk lokast inn í rústum húsa. Byggingar í Bógóta hafa verið rýmdar vegna skjálftans en ekki hefur verið tilkynnt um skemmdir þar.Nubia Carolina Córdoba-Curi héraðsstjóri í Chocó-héraði, þar sem skjálftinn átti upptök sín, segir á X að í borginni Quibdó hafi orðið slys á fólki og byggingar skemmst mikið. Um 130 þúsund manns búa í borginni. Verið sé að meta tjónið. Sex flugvöllum hefur verið lokað vegna skjálftans og efti