Komu í veg fyrir aðgerð rússnesku leyniþjónustunnar

Sænska öryggislögreglan, Säpo, segist hafa komið í veg fyrir aðgerð rússnesku leyniþjónustunnar. Markmiðið hafi verið að grafa undan trúverðugleika Svíþjóðar.Í yfirlýsingu öryggislögreglunnar kemur fram að hún hafi safnað upplýsingum um og gripið til aðgerða gegn aðgerð rússnesku leyniþjónustunnar. Aðgerðin hafi átt að hafa áhrif á ákvarðanatöku sænskra stjórnvalda og gera Svíþjóð, NATO og Evrópusambandið ótrúverðug.Öryggislögreglan segir fulltrúa leyniþjónustunnar sem starfaði á erlendri sendiskrifstofu í Svíþjóð koma að málinu en tók ekki fram hvaða sendiskrifstofa það var.Aðgerðin hafi verið skipulögð og henni stýrt af rússnesku utanríkisþjónustunni, SVR, um nokkurt skeið.„Eitt af markmiðum aðgerðarinnar var að safna upplýsingum um ákvarðanatökur í Svíþjóð til að gera rússnesku leyniþjó
Komu í veg fyrir aðgerð rússnesku leyniþjónustunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd